Knattspyrnufélagið Vatnsberar
Vatnsberar
Myndasöfn
30.07.2009 08:08:27 / Dabbi

Bolti í kvöld


Fylkisvöllur kl 21:30

Ég veit ekkert hvort menn eru farnir á þjóðhátíð eða hvað en við stefnum á þokkalega mætingu.  Næsti leikur á miðvikudag.

Dabbi #1

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2009 21:37:27 / Dabbi

Vatnsberar - SÁÁ 0:3


Byrjunarliðið í kvöld:

Bjöggi
Haukur - Hlynur - Jonni - Hannes - Davíð S.
Jói - Atli - Einar - Gummi
Halli

Bekkurinn:  Elís, Gústav og Kiddi kom svo í hálfleik.

Fengum á okkur mark eftir hornspyrnu eftir ca 30 sekúndur eða eitthvað álíka,
stórglæsilegt mark þó.  0:1 í hálfleik.  SÁÁ menn settu annað í byrjun síðari hálfleiks og kláruðu endanlega leikinn undir lokin.
Ákváðum fyrir leikinn að þétta miðjuna sem gekk ágætlega.  Heilt yfir voru þeir ekki að skapa sér mikið af færum en við óðum svo sem ekki sjálfir í færum en fengum 3-4 möguleika sem ekki nýttust.
Fer fækkandi leikjunum en við þurfum eitthvað að spýta í og koma okkur af botninum.

Einhverjir 10 dagar eða svo í næsta leik, miðvikudaginn 5. ágúst kl 19:00.  Bolti á fimmtudag fyrir verslunarmannahelgi.

Eftir mánaðarmót ætlast ég til að þeir sem eru með útistandandi skuldir gangi frá sínum fjárhagsmálum, allt í linknum hérna til vinstri og ég uppfæri hann reglulega.  Þetta segir sig sjálft, í hvað peningarnir okkar eru að fara.

Dabbi #1

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2009 23:58:29 / Dabbi

NÆSTI LEIKUR


Sunnudagur 26. júlí kl. 19:00 í Kórnum

Vatnsberar - SÁÁ



Mæting hálftíma fyrr eða svo.  Við vorum rosalega tæpir á mannskap í síðasta leik, eiginlega of tæpir.  Þess vegna bið ég menn sérstaklega að láta vita hvort þeir eru on eða off í þennan leik, nenni helst ekki að vera með 5 pottþétta 7 tímum fyrir leik eins og síðast.  Ef menn komast ekki þá vil ég vita það hérna á netinu eða með sms-i, fyrr er betra en síðar.  Svo ég ítreki það enn, það er ekkert að því að komast ekki í leiki en ég þarf bara að vita hvort menn mæta eða ekki svo hægt sé að kalla út einhvern varamannskap tímanlega.  Mjög einfalt.

Dabbi #1

» 9 hafa sagt sína skoðun

23.07.2009 09:25:49 / Dabbi

Bolti í kvöld


Fylkisvöllur kl 21:30

Næsti leikur á sunnudaginn kl 19:00


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2009 23:20:43 / Dabbi

Haukar U - Vatnsberar 4:1


Klöppum fyrir þeim 11 manns sem mættu í þennan leik og kláruðu hann frá a-ö.

KLAPP - KLAPP - KLAPP...

Í fyrra voru menn ákveðnir í að láta það ekki gerast aftur að mæta of fáir til leiks sem gerðist tvisvar þá.  Það gerðist ekki núna, en tæpt var það.  Rútan frá Grundarfirði bilaði, útvarpið festist á tíðni FM103,7 sem gerði það að verkum að þeir fjórir leikmenn sem eru staðsettir þar og lofuðu fyrir sumarið að koma í neyðartilvikum, komust ekki.

Héldum hreinu fram í hálfleik sem var hálf-lygilegt og Sólberginn náði meira að segja að smyrja blöðrunni einu sinni í rammann hjá Haukunum.  Fengum á okkur 4 mörk á rúmlega 10 mínútna kafla í seinni hálfleik, eitt úr víti og önnur misfalleg.  Atli gat lagað stöðuna fyrir okkur þegar við fengum víti og hann gat jafnað Sólberginn í markaskorun þetta árið en pressan fór eitthvað illa í hann og hann lét verja frá sér.  Sólberginn sá að þetta gekk ekki upp og náði að laga stöðuna fyrir okkur með viðbjóðslegu marki, en þau telja víst jafnmikið og hin.  Mér telst svo til að kappinn sér búinn að skora í 4 leikjum í röð, þ.e. þeim síðustu fjórum leikjum sem hann hefur tekið þátt í og það er örugglega félagsmet án þess að ég hafi nokkuð haldbært fyrir mér í því.

Æfing á fimmtudag og næsti leikur á sunnudaginn næsta kl. 19:00.  Meira um það síðar.

Dabbi #1


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2009 09:49:36 / Dabbi

Næsti leikur


Sunnudagur 19. júlí kl. 20:30 á Ásvöllum
Haukar U - Vatnsberar

Mæting kl. 20:00.  Eitthvað voru menn óvissir með mætingu í þennan leik en það er nauðsynlegt að vita stöðuna á mönnum.

Látið vita með stöðuna á ykkur með einhverjum leiðum og fyrr en síðar.

Dabbi #1


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2009 23:50:47 / Dabbi

Nings - Vatnsberar 5:2

Byrjunarliðið í kvöld:

Hrafn - Ari
Haukur - Jonni - Hlynur - Kiddi
Stebbi F. - Einar - Atli - Jói
Dabbi #1

Bekkurinn:  Auðunn, Davíð S., Gústav, Hannes, Ingvar, Stefan Gaukur og Elís.

Gott veður og nóg af mannskap, það mikil mæting að allar treyjurnar kláruðust.  Annað varðandi leikinn var ekkert sérstakt.  Lentum undir í byrjun leiks en Davíð S. náði að jafna fyrir hálfleik, 1:1 í hálfleik.  Byrjuðum seinni hálfleikinn eins og þann fyrri með því að fá á okkur mark og fengum svo á okkur fleiri mörk.  Atli lagaði stöðuna úr víti og gerir því harða atlögu að markakóngstitlinum þetta árið.
Kalt mat:  Vorum lélegra liðið í leiknum en full stórt tap.

Næsti leikur á sunnudaginn, á sama stað en kickoff kl. 20:30.  Verður líklegast eitthvað fámennara þá en tökum stöðuna á laugardeginum.

Dabbi #1

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2009 07:43:14 / Dabbi

Næsti leikur


Fimmtudagur 16. júlí kl. 21:00 á Ásvöllum
Nings - Vatnsberar

16. liða úrslit í bikarnum.  Þeir slógu okkur út í fyrra í einum fáránlegast leik sem undirritaður hefur tekið þátt í þar sem við hófum leikinn 7 á móti 10 en þegar upp var staðið enduðum við 10 en þeir 11.

Sólberginn tók 2007 á þetta og er úti á Spáni á meðan Gummi er meira 2009 í tjaldútilegu einhversstaðar fyrir austan.  Halli er svo í banni og er efstur í baráttunni um titilinn grófasti Vatnsberinn þetta árið.

Mæting 20:30 og ég bendi mönnum á að við erum EKKI að spila í Kórnum.

Spurning með almenna mætingu?

Dabbi #1


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2009 09:14:44 / Dabbi

Æfing í kvöld


Fylkisvöllur kl 21:30

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2009 23:20:39 / Dabbi

Vatnsberar - Esjan 1:5


Byrjunarliðið í kvöld:


Davíð S. - Hannes
Haukur - Hlynur - Valur - Kiddi
Jói - Atli - Einar - Gummi
Halli

Bekkurinn:  Auðunn, Ingvar og Þorgeir.  Copy/paste frá síðasta leik, byrjuðum vel og áttum í raun fínan fyrri hálfleik.  Haukur kom okkur yfir með stórglæsilegu marki beint úr aukaspyrnu, smurði blöðruna upp í hornið fjær.  Fengum færi sem ekki náðist að nýta á meðan þeir voru nánast með 100% nýtingu hjá sér, 1:2 í hálfleik.  Seinni hálfleikur var talsvert erfiðari en óþarflega stórt tap.  Fyrrverandi formaðurinn átti skalla í slá og kórónaði svo leik sinn með því að spila síðustu 10 sekúndurnar af leiknum í marki eftir að Halli fékk rauða spjaldið og fékk á sig eitt mark, beint úr aukaspyrnu.
Enn erum við að líða fyrir þunnskipaðan hóp en andstæðingar okkar voru nánast með annað lið á bekknum.

Æfing á fimmtudaginn, næsti leikur er svo fimmtudaginn 16. júlí.  Nánari leikjaplan er komið hérna inn til vinstri undir Leikir Vatnsberar 2009.  Minni einnig á linkinn borgunarmenn en þar sjáið þið stöðuna á þessu skemmtilega fjárhagslið.  Hvet menn til að græja sinn hlut hið fyrsta.

Dabbi #1




» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2009 09:41:54 / Dabbi

Næsti leikur


Þriðjudagur 7. júlí kl. 21:00 í Kórnum

Vatnsberar - Esjan


Mæting 20:30.  Láta vita um þátttöku eða fjarveru svo við lendum nú ekki í neinu veseni.

Dabbi #1


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.07.2009 09:44:13 / Dabbi

Æfing í kvöld og...


Æfing í kvöld kl 21:30 á Fylkisvelli
Næsti leikur er á þriðjudaginn 7. júlí í Kórnum kl. 21:00

Hér til vinstri er kominn inn listi yfir þá sem hafa greitt gjald sumarsins eða hluta af því, undir BORGUNARMENN 2009.  Það var talað um að pakkinn, Fylkisvöllurinn og utandeildin, væri 15.000 kall á haus.  Það ætti að nást ef menn standa við sitt.  Einhverjir eru búnir, aðrir eru komnir langleiðina en einhverjir eru ekki einu sinni komnir á blað sem er ekki gott.  Koma svo, klára þessi mál asap.

kt: 021176-4199
reiknnr: 0191-05-070959

Dabbi #1


» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  40  Alls: 154576
Klukkan
Leitarbox