Miðvikudagur 5. ágúst kl 19:00 HK-völlur
Hjörleifur - Vatnsberar
Mæting eigi síðar en 18:30. Þunnskipaður hópurinn í síðustu tveimur leikjum hjá okkur þannig að ég ítreka við menn að láta vita, hér eða með sms-i um hvort menn mæta eða ekki, fyrr en síðar.
Að auki vil ég biðja menn um að ganga frá sínum málum með greiðslur fyrir sumarið. Allar upplýsingar hérna til vinstri undir Borgunarmenn 2009. Þetta er ekki flókið, við erum ekki komnir með í hús fyrir öllum reikningum sumarsins sem by-the-way eru á mínu nafni en það er alveg á kristaltæru að ég ætla ekki að borga fyrir mannskapinn það sem upp á vantar.
Dabbi #1