Eftir erfitt sumar árið 2008 var samt ákveðið að halda áfram með klúbbinn og senda lið inn í utandeildina þetta sumar sem er að ljúka. Menn gerðu sér samt fulla grein fyrir því að eitthvað yrði að vinna í leikmannamálum. Við hófum æfingar á Fylkisvellinum í febrúar og eitthvað af nýjum andlitum létu sjá sig, sumir stoppuðu stutt við á meðan aðrir tóku slaginn með okkur í sumar. Tókum þátt í æfingamóti þar sem niðurstaðan varð 1 sigur, 1 jafntefli og 2 töp. Töpuðum svo þeim tveimur æfingaleikjum sem við tókum að auki áður en utandeildin hófst.
Töpuðum fyrsta leiknum í mótinu en unnum þann næsta og komust síðan í gegnum fyrsta leik í bikarkeppninni eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Til að gera langa sorgarsögu stutta þá töpuðum við restinni af leikjum sumarsins.
Lokastaðan í riðlinum var:
B-riðill
|
L
|
U
|
J
|
T
|
Mörk |
Stig |
1. Hjörleifur
|
10
|
8
|
2
|
0
|
38:15
|
26
|
2. Vatnaliljur
|
10
|
7
|
3
|
0
|
29:11
|
24
|
3. SÁÁ
|
10
|
6
|
3
|
1
|
30:13
|
21
|
4. Dufþakur
|
10
|
5
|
2
|
3
|
31:29
|
17
|
5. Haukar U
|
10
|
4
|
4
|
2
|
22:13
|
16
|
6. Fc CCCP
|
10
|
4
|
1
|
5
|
21:20
|
13
|
7. Esjan
|
10
|
3
|
1
|
6
|
22:28
|
10
|
8. Geirfuglar
|
10
|
3
|
0
|
7
|
18:26
|
9
|
9. Hómer
|
10
|
2
|
2
|
6
|
16:30 |
8 |
10. Fc Dragon
|
10
|
1
|
4
|
5
|
11:22 |
7 |
11. Vatnsberar
|
10
|
1
|
0
|
9
|
12:43 |
3 |
Neðsta sætið í riðlinum var því niðurstaða sumarsins. Fengum á okkur flest mörk allra liða í deildinni, ef allir þrír riðlarnir eru taldir, og ekki mörg lið sem skoruðu færri mörk en við. Eitt þeirra, Fc Dragon sem skoruðu 11 mörk, tókst að skora 4 á móti okkur. Björgvin Sólberg telst markakóngur sumarsins hjá okkur með 4 mörk. Ætli Halli verði ekki að teljast spjaldakóngur sumarsins með eina rauða spjald sumarsins.
Þótt mannskapsmálin hafi verið skárri í sumar miðað við árið áður þá var það samt ekki nógu gott. Í tveimur leikjum mættum við bara 11 og það var því alveg á tæpasta vaði sem við náðum því takmarki sumarsins, að mæta alltaf a.m.k. 11.
Fjárhagshliðin á þessu dæmi er að reddast, mér sýnist við vera svona nokkurn veginn á núllinu. Reyndar voru einhverjar teiprúllur, hitakrem og kælispray sem ég verslaði inn sem var ekki sett upp í heildarpakkann en ég vonast til að það hafist að fá restina af seðlunum í hús.
Þá er spurning hvað menn ætla að gera núna í framhaldi. Ætli sé ekki réttast að menn taki þetta eins og síðast, taki því rólega fram að áramótum og athuga svo stemminguna hjá kjarnanum. Ég tel ekki grundvöll fyrir því að halda úti liði næsta sumar nema með einhverri toppmannskapsaukningu og ekki nóg að fá bara einhverja, þeir verða að vera þokkalegir í tuðrusparki.
Ég hef sjálfur séð um þennan klúbb síðastliðin tvö ár eftir að fyrrverandi formaður pakkaði niður, skipti á blokkaríbúðinni sinni í Breiðholtinu og einbýlishúsi með bílskúr í sveitinni. Kiddi hefur reyndar aðstoðað mig en það er ljóst að ég nenni ekki að vera lengur í skipstjórasætinu, allur sms-pakkinn, leikskýrslur, búningaþvottur og fjárhagsmálin svo eitthvað sé nefnt.
Svona er staðan á þessu. Þangað til næst...
Dabbi #1